

Þrjár þeirra mynda sem tilnefndar eru til Óskarsverðlauna í ár sem besta erlenda kvikmyndin voru sýndar á RIFF 2011. Alls eru níu erlendar myndir tilnefndar í ár og var þriðjungurinn sýndur á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík í fyrra. Þetta eru "
Superclásico" eftir danska leikstjórann Ole Christian Madsen, "
Pina" eftir þýska leikstjórann Wim Wenders og "
A seperation" eftir íranska leikstjórann Asghar Farhadi.